28.12.12 - 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Alex McLeish tekinn við Nottingham Forest (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Alex McLeish hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Nottingham Forest en hann tekur við af Sean O\'Driscoll sem var rekinn í fyrradag.
McLeish hefur verið án félags síðan hann fékk stígvélið hjá Aston Villa undir lok síðasta tímabils. Einnig hefur hann verið við stjórn hjá Birmingham og skoska landsliðsins.
Nottingham Forest er í áttunda sæti ensku Championship deildarinnar og sendi frá sér yfirlýsingu að félagið vildi fá inn metnaðarfullan stjóra með reynslu úr úrvalsdeildinni og þar sem janúarglugginn nálgast væri kominn tími fyrir breytingar.
Því var McLeish ráðinn til starfa en fyrsti leikur hans með Nottingham Forest verður gegn Crystal Palace á sunnudaginn.