28.12.12 - 18:40
Elvar Geir Magnússon
Arnar ráðinn til Club Brugge (Staðfest)

Arnar í höfuðstöðvum Club Brugge í kvöld.

Mynd: Kristján Bernburg

Arnar Grétarsson var í dag kynntur sem nýr yfirmaður íþróttamála hjá belgíska félaginu Club Brugge. Starfið er ansi viðamikið en hann gegndi samskonar starfi hjá AEK í Aþenu.
Arnar þekkir til í Belgíu síðan hann lék með Lokeren.
Hann mun hefja störf hjá Club Brugge strax á nýju ári en liðið er sem stendur í fjórða sæti belgísku úrvalsdeildarinnar.
Í tilkynningu félagsins segir að menn séu sannfærðir um að hann sé rétti maðurinn í starfið. Arnar segist hlakka til að hefja störf og stefnan sé sett hátt.
Arnar var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag þegar hann var orðaður við starfið og er hægt að hlusta á viðtalið með því að smella hér.