Fotbolti.net
29.01.17 - 13:30
Kristófer Kristjánsson

Bojan til Mainz á láni (Staðfest)

Bojan er kominn til Mainz

Bojan er kominn til Mainz

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Framherji Stoke, Bojan, hefur gengið til liðs við Mainz í Þýskalandi á láni út tímabilið.
Þessi 26 ára leikmaður sem kom úr akademíu Barcelona sló í gegn hjá Stoke þegar hann gekk til liðsins sumarið 2014 fyrir þrjár milljónir punda.

Hann hefur hinsvegar aðeins spilað fimm úrvalsdeildarleiki á þessari leiktíð og hafa Stoke nú styrkt framlínu sína enn frekar með Saide Berahino.

„Það er heiður fyrir mig að Mainz ætli að gefa mér tækifæri til að sanna mig í annarri topp deild í Evrópu. Ég hlakka til að mæta liðsfélögum mínum og stuðningsmönnunum og að komast á völlinn sem fyrst,\" sagði Bojan við heimasíðu Mainz 05.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.