Fotbolti.net
29.01.18 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Alexander Scholz til Club Brugge (Staðfest)

Alexander Scholz til Club Brugge (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

Danski miðvörðurinn Alexander Scholz er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við Club Brugge í Belgíu.

Club Brugge er meðal bestu liða Belgíu og er sem stendur á toppi efstu deildar þar í landi, með ellefu stiga forystu. Liðið endaði í öðru sæti á síðasta tímabili, tveimur stigum eftir Anderlecht.
Scholz kemur til félagsins frá Standard Liege, sem er um miðja deild. Scholz var með byrjunarliðssæti í nokkur ár en missti það og vildi því leita á önnur mið.

Scholz átti mjög gott tímabil með Stjörnunni sumarið 2012 og gerði 5 mörk í Pepsi-deildinni. Hann hélt til Belgíu í kjölfarið og hefur verið þar í fimm og hálft ár. Hann er 25 ára gamall.

Varnarmaðurinn á 14 leiki að baki fyrir U21 landslið Danmerkur en hefur ekki fengið tækifæri með A-landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.