Fotbolti.net
29.01.18 - 14:50
Magnús Már Einarsson

Annar Egypti í vörnina hjá WBA (Staðfest)

Sáttur með skiptin.

Sáttur með skiptin.

Canon

Mynd: Twitter

WBA hefur fengið varnarmanninn Ali Gabr á láni frá Zamalek út tímabilið.

Síðastliðið sumar fékk Ahmed Hegazi á láni frá Al Ahly en félagið gekk svo frá kaupum á honum í vetur eftir góða frammistöðu.

Samkomulagið við Zamalek um Gabr er eins en WBA á kost á að kaupa hann ef vel gengur.

Hegazi og Gabr eru góðir vinir og samherjar í egypska landsliðinu en þeir eru á leiðinni á HM í sumar.
„Ég er kominn hingað til að hjálpa liðinu og sinna mínu starfi. Ég er mjög ánægður og spenntur með að vera kominn hingað,\" sagði Gabr en hann á að hjálpa WBA í fallbaráttunni sem er framundan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.