Fotbolti.net
29.01.18 - 21:15
Ívan Guðjón Baldursson

Deulofeu hjá Watford út tímabilið (Staðfest)

Deulofeu gerði 4 mörk í 17 deildarleikjum með AC Milan.

Deulofeu gerði 4 mörk í 17 deildarleikjum með AC Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

Gerard Deulofeu er búinn að skrifa undir sex mánaða lánssamning við Watford.

Deulofeu er uppalinn hjá Barcelona og nýtti félagið sér kaupréttinn á honum síðasta haust og keypti til baka frá Everton.
Hjá Barca fékk Deulofeu tækifæri á fyrri hluta tímabilsins en þótti ekki standa sig nægilega vel og er ekki með sæti í leikmannahópnum lengur.

Watford vildi borga aukalega fyrir lánið og fá kaupmöguleika með í samninginn en Börsungar höfnuðu þeirri hugmynd. Deulofeu verður því hjá Watford þar til í sumar.

Deulofeu hefur lengi verið talinn meðal efnilegustu Spánverja úr sínum árgangi, en hann verður 24 ára í mars. Deulofeu spilar sem framherji, ýmist á hægri eða vinstri kanti, og hefur unnið til fjölda verðlauna með yngri landsliðum Spánverja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.