29.01.18 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Diafra Sakho til Rennes (Staðfest)

Farinn til Frakklands.

Mynd: Getty Images

Farinn til Frakklands.

Mynd: Getty Images
Franska félagið Rennes hefur keypt framherjann Diafra Sakho frá West Ham. Kaupverðið var ekki gefið upp en talið er að það hljóði upp á níu milljónir punda.
Hinn 28 ára gamli Sakho skoraði 24 mörk í 71 leik á þremur og hálfu ári hjá West Ham.

Sakho skoraði í fyrstu sex leikjum sínum eftir að hann kom til West Ham frá Metz árið 2014 og var valinn leikmaður október mánaðar.
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Senegalanum undanfarin ár og hann hefur einungis verið tvisvar í byrjunarliði í enksu úrvalsdeildinni síðan sumarið 2016.
Framherjinn Andre Ayew gæti einnig verið á förum frá West Ham en Swansea vill fá hann. West Ham er aftur á móti að reyna að fá Graziano Pelle fyrrum framherja Southampton í sínar raðir.