Fotbolti.net
29.01.18 - 21:37
Ívan Guðjón Baldursson

Musonda kominn til Celtic (Staðfest)

Musonda kominn til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic er búið að staðfesta komu Charly Musonda til félagsins á láni næstu 18 mánuðina.

Mörg félög hafa verið orðuð við Musonda sem þykir gríðarlega spennandi og efnilegur leikmaður, aðeins 21 árs gamall.
Musonda fékk að spila reglulega á láni hjá Real Betis á síðasta tímabili og virkilega heppilegt fyrir Celtic að tryggja sér þjónustu hans í eitt og hálft ár.

Musonda er nokkuð fjölhæfur, þar sem hann er sóknartengiliður að upplagi en getur einnig leikið á köntunum og á miðjunni.

Hann á 53 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Belgíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.