Fotbolti.net
29.01.18 - 20:23
Ívan Guðjón Baldursson

Tim Cahill aftur til Millwall (Staðfest)

Tim Cahill aftur til Millwall (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 38 ára gamli Tim Cahill hefur ákveðið að snúa aftur á gamlar slóðir, eða til Millwall þar sem hann hóf feril sinn sem atvinnumaður.

Cahill lék fyrir Millwall í sex ár við góðan orðstýr áður en hann var keyptur til Everton þar sem hann gerði garðinn frægan.
Cahill er ennþá í fantaformi þrátt fyrir háan aldur og er búinn að gera 11 mörk í 28 deildarleikjum fyrir Melbourne City í ástralska boltanum.

Millwall er í neðri hluta Championship deildarinnar á Englandi, átta stigum fyrir ofan fallsæti og fjórtán stigum frá umspilsbaráttunni.

Cahill gerði 56 úrvalsdeildarmörk fyrir Everton og hefur skorað 50 sinnum í 104 landsleikjum með Ástralíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.