29.01.18 - 10:39
Magnús Már Einarsson
Ulloa til Brighton á láni (Staðfest)

Mynd: GettyImages

Mynd: GettyImages
Brighton hefur fengið framherjann Leonardo Ulloa á láni frá Leicester út tímabilið.
Hinn 31 árs gamli Ulloa skoraði 23 mörk í 50 leikjum með Brighton tímabilkið 2013/2014 áður en Leicester keypti hann í sínar raðir.
Ulloa skoraði sex mörk þegar Leicester varð enskur meistari tímabilið 2015/2016.
Hlutverk hans í liðinu hefur farið minnkandi síðan þá og á þessu tímabili hefur hann einungis komið við sögu í fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni með Leicester.
Samtals eru mínúturnar í þessum fjórum leikjum átján og Ulloa vonast eftir að fá að spila meira fram á sumar.

🇦🇷 "Who's that man from Argentina..."
— Brighton & Hove Albion ⚽️ (@OfficialBHAFC) January 29, 2018
😬 Guess who's back...#BHAFC 🔵⚪️ pic.twitter.com/lVy3oKsZNh