Fotbolti.net
29.01.19 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Antonio Sanabria til Genoa (Staðfest)

Antonio Sanabria til Genoa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Genoa staðfesti í gær komu Antonio Sanabria til félagsins á eins og hálfs árs lánssamning frá Real Betis, út tímabilið 2020. Ítalska félagið getur keypt sóknarmanninn fyrir 20 milljónir evra.
Sanabria verður 23 ára í mars og hefur gert 19 mörk í 64 leikjum fyrir Betis en á einnig leiki að baki fyrir B-lið Barcelona, Sassuolo, Roma og Sporting Gijon.

Sanabria bætti Genoa við listann í gærkvöldi er liðið heimsótti Empoli. Paragvæinn ungi kom inn af bekknum í stöðunni 1-1 og fimm mínútum síðar skoraði hann og innsiglaði 1-3 sigur Genoa.

Sanabria hefur skorað einu sinni í níu tilraunum með A-landsliði Paragvæ og eru miklar væntingar bornar til hans í heimalandinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.