Fotbolti.net
29.01.19 - 16:15
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Caceres til Juventus í þriðja skipti (Staðfest)

Caceres til Juventus í þriðja skipti (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur fengið varnarmanninn Martin Caceres á láni frá Lazio út tímabilið.

Caceres á að auka breiddina í vörninni eftir að Medhi Benatia var seldur tl Al-Duhail í Katar.
Úrúgvæinn þekkir vel til hjá Juventus þvi þetta er í þriðja skipti á ferlinum sem hann skrifar undir hjá félaginu.

Cacerers var í láni hjá Juventus frá Barcelona tímabilið 2009-2010 og hann var síðan í herbúðum Juve frá 2012 til 2016.

Caceres er 31 árs gamall en hann hefur einnig leikið með Sevilla, Southampton, Verona og fleiri félögum á ferlinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.