29.01.19 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jese lánaður til Real Betis (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spánverjinn Jese Rodriguez er búinn að gera lánssamning við Real Betis út þetta tímabil. Hann kemur á láni frá Paris Saint-Germain í Frakklandi.
Jese, sem er 25 ára, þótti mjög efnilegur þegar hann kom upp úr akademíu Real Madrid.
Hann náði hins vegar ekki að vinna sér sæti í liði Real Madrid og fór því til Paris Saint-Germain, þar sem hann lenti líka í vandræðum með reglulegt sæti í byrjunarliðinu.
Hann hefur verið lánaður til Las Palmas og Stoke, en meiðsli sem og erfiðleikar utan vallar hafa haft áhrif á hann. Sonur hans fæddist fjórum mánuðum fyrir tímann og hefur glímt við erfið veikindi. Það hefur skiljanlega tekið á.
Núna ætlar hann að klára tímabilið hjá Betis sem er í áttunda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.