Fotbolti.net
29.03.19 - 17:30
Arnar Daði Arnarsson

Dusan Zilovic í Fjarðabyggð (Staðfest)

Úr leik Fjarðabyggðar.

Úr leik Fjarðabyggðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fjarðabyggð hefur bætt við sig varnarmanni fyrir átökin í 2. deildinni í sumar. Á dögunum fékk liðið til sín Dusan Zilovic frá Serbíu.

Dusan er 26 ára varnarmaður sem er væntanlegur til landsins í næstu viku og gæti því leikið síðustu leiki Fjarðabyggðar í Lengjubikarnum áður en 2. deildin hefst.

Hann hefur spilað í Serbíu í meistaraflokki frá árinu 2013 og leikið þar rétt rúmlega 100 leiki.
Fjarðabyggð leikur í 2. deildinni í sumar en liðið lenti í 7. sæti 2. deildarinnar í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.