Fotbolti.net
29.03.19 - 08:30
Arnar Helgi Magnússon

Kormákur Marðarson í KFG (Staðfest)

Úr leik KFG árið 2015

Úr leik KFG árið 2015

Canon

Mynd: Þorsteinn Ólafs

KFG er að styrkja sig fyrir komandi átök í 2. deild en liðið hefur fengið til sín Kormák Marðarson.
Kormákur kemur til liðsins frá Berserkjum en hann hefur verið einn besti leikmaður Berserkja undanfarin ár.

Leikmaðurinn er fæddur árið 1993 og hefur leikið með Berserkjum allan sinn meistaraflokksferil, fyrir utan tímabilið 2011, en þá lék hann með Þrótti R.

Kormákur er sóknarsinnaður miðjumaður. Hann gerði fjögur mörk fyrir Berserki á síðasta tímabili.

Næsti leikur KFG er gegn ÍR á laugardag en sá leikur er í Lengjubikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.