29.03.19 - 12:01
Elvar Geir Magnússon
Vitor Vieira aftur í KF (Staðfest)

Vitor Vieira Thomas.

Mynd: KF

Vitor Vieira Thomas.

Mynd: KF
Vitor Vieira Thomas hefur skrifað undir hjá KF. Liðið hafnaði í þriðja sæti 3. deildar síðasta sumar.
Vitor Veira, sem er tvítugur, kemur frá Val þar sem hann hefur verið síðasta árið.
Hann lék sautján leiki og skoraði þrjú mörk fyrir KF í 3. deildinni árið 2017.

„Gríðarleg ánægja er að fá Vitor heim og mun hann vera mikill liðstyrkur fyrir átökin í sumar. Við bjóðum Vitor velkominn heim og óskum honum alls hins besta," segir á heimasíðu KF.
KF er að styrkja sig fyrir sumarið, til að mynda gekk Ingi Freyr Hilmarsson til liðs við félagið um daginn frá Þór Akureyri.
„Margir ungir leikmenn hafa haft félagsskipti til KF í vetur til þess að hjálpa liðinu í Lengjubikarnum og verður gaman að sjá hvort einhverjir taki slaginn með KF í sumar en það verður þá tilkynnt hér á síðunni."
„Fyrsti leikur KF tímabilið 2019 verður í Mjólkurbikarnum 13. Apríl gegn Nökkva. 3.deildin hefst svo 4. maí á útileik gegn Álftanes."