Fotbolti.net
29.04.18 - 13:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Celtic valtaði yfir Rangers og er skoskur meistari (Staðfest)

Sjöunda árið í röð

Celtic valtaði yfir Rangers og er skoskur meistari (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic tryggði sér skoska meistaratitilinn sjöunda árið í röð með stórsigri á erkifjendum sínum í Rangers þennan sunnudaginn.

Lærisveinar Brendan Rodgers byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru 3-0 yfir í hálfleik eftir tvö mörk frá Frakkanum Odsonne Edouard og annað frá James Forrest.
Rangers hafði engin svör og Tom Rogic bætti við fjórða markinu í upphafi seinni hálfleiks og stuttu síðar gerði Callum McGregor mark númer fimm, staðan orðin 5-0.

Celtic hefði getað bætt við fleiri mörkum en létu staðar numið í stöðunni 5-0 og deildartitillinn tryggður.

Þetta er sjöunda árið í röð þar sem Celtic er skoskur meistari. Liðið getur orðið bikarmeistari annað árið í röð þann 19. maí næstkomandi. Mótherjinn í úrslitaleiknum verður Motherwell.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.