Fotbolti.net
29.04.18 - 13:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Chris Coleman rekinn frá Sunderland (Staðfest)

Eigandaskipti hjá félaginu

Coleman tók við Sunderland í slæmri stöðu.

Coleman tók við Sunderland í slæmri stöðu.

Canon

Mynd: Getty Images

Chris Coleman hefur verið rekinn sem knattspyrnustjóri Sunderland, en félagið er að ganga í gegnum eigandaskipti.

Sunderland féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en á þessu tímabili féll liðið úr Championship-deildinni og mun því spila í C-deildinni á næsta tímabili.
Coleman hætti með Wales í nóvember til að taka við Sunderland.

Hinn 47 ára gamli Coleman kom Wales í undanúrslitin á EM 2016, en hann er nú atvinnulaus eftir að hafa aðeins unnið fimm leiki af 29 síðan hann tók við Sunderland.

Stuðningsmenn Sunderland gera sér vonir um bjartari tíma en Ellis Short er að selja félagið til hóp fjárfesta með Stewart Donald, stjórnarformann E-deildarliðsins Eastleigh í fararbroddi.

Félagið verður laust við allar skuldir við eigandaskiptin.

Club Statement: Chris Colemanhttps://t.co/xB61bqeVw2

— Sunderland AFC 🔴⚪ (@SunderlandAFC) April 29, 2018


CLUB STATEMENT: Sunderland AFC to change ownership pic.twitter.com/REy00JBFsl

— Sunderland AFC 🔴⚪ (@SunderlandAFC) April 29, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.