Fotbolti.net
29.04.18 - 16:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Firmino búinn að skrifa undir nýjan samning (Staðfest)

Firmino búinn að skrifa undir nýjan samning (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roberto Firmino hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Liverpool. Samningurinn er til fimm ára.

Brasilíumaðurinn, sem kom frá Hoffenheim til Liverpool árið 2015, hefur skorað 27 mörk 53 leikjum á tímabilinu. Hann er hluti af hinu baneitraða sóknartríói Liverpool ásamt Sadio Mane og Mo Salah.
„Þetta var auðveld ákvörðun að taka,\" sagði Roberto Firmino eftir að hafa skrifað undir samninginn. „Ég er mjög, mjög ánægður hérna. Það er allt sem smellpassar fyrir mig. Liðsfélagarnir eru frábærir og ég er þakklátur að fá að spila með þeim hér.\"

Firmino og félagar í Liverpool eru komnir með annan fótinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir 5-2 sigur á Roma í fyrri leik liðanna í undanúrslitunum. Seinni leikurinn er á miðvikudag.

Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband sem Liverpool lét fylgja með fréttunum af nýjum samningi Firmino.

❌👀

🤝 Roberto Firmino agrees terms on new long-term #LFC deal: https://t.co/rvxJ30Ochp pic.twitter.com/sUsuABAkrx

— Liverpool FC (@LFC) April 29, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.