Fotbolti.net
29.04.18 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stelpa hjálpaði 3. flokki karla hjá Val að verða meistari

Stelpa hjálpaði 3. flokki karla hjá Val að verða meistari
Canon

Mynd: Instagram - Valur

Valsmenn urðu Reykjavíkurmeistarar í 3. flokki í gær eftir 3-1 sigur á Fylki. Frá þessu er sagt á Instagram.
Jafntefli hefði dugað Valsmönnum til sigurs í mótinu en „þeir vildu klára þetta með stæl í sólinni á Valsvellinum.\"

Athyglisvert er að greina frá því að í marki Vals var Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving. Hún hefur verið aðalmarkvörður liðsins í vetur og staðið sig frábærlega að sögn Valsmanna.

Hún varði víti í stöðunni 1-0 fyrir Val í gær.

Staðan var 1-0 í hálfleik þökk sé henni en í seinni hálfleiknum gengu Valsmenn frá leiknum með tveimur mörkum. Fylkir klóraði í bakkann og urðu lokatölurnar 3-1 fyrir Val sem Reykjavíkurmeistari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.