Fotbolti.net
29.04.19 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Genoa kaupir danskan landsliðsmann (Staðfest)

Lerager á 23 leiki að baki fyrir A- og yngri landslið Dana.

Lerager á 23 leiki að baki fyrir A- og yngri landslið Dana.

Canon

Mynd: Getty Images

Genoa er búið að festa kaup á danska miðjumanninum Lukas Lerager, sem kom til félagsins á láni í lok janúar.
Í lánssamningi Lerager kom fram að ef hann myndi taka þátt í 10 leikjum á lánstímabilinu þá þyrfti ítalska félagið að kaupa hann fyrir 7 milljónir evra. Daninn fór beint í byrjunarliðið og er búinn að vera einn af fáum ljósum punktum liðsins á seinni hluta tímabils.

Lerager er 25 ára varnarsinnaður miðjumaður og lék hann 68 leiki á einu og hálfu ári hjá Bordeaux í Frakklandi. Lerager er uppalinn hjá AB og lék í þrjú ár fyrir Viborg áður en hann var fenginn til Zulte Waregem í Belgíu.

Genoa er í fallbaráttu í ítölsku deildinni, fimm stigum fyrir ofan fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.