Fotbolti.net
29.05.20 - 10:30
Fótbolti.net

Æfingaleikir: Magni og Njarðvík unnu

Kristinn Þór Rósbergsson.

Kristinn Þór Rósbergsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Magni lagði Augnablik 1-0 í æfingaleik í Boganum í gær en Kristinn Þór Rósbergsson skoraði eina markið. Frosti Brynjólfsson spilaði með Magna í leiknum en hann er á leið til félagsins frá KA.

Enski miðjumaðurinn Louis Wardle var ekki með Magna þar sem hann er í sóttkví sem og annar enskur leikmaður sem er á leið til félagsins.

Njarðvík lagði KV 3-2 á Rafholtsvellinum í Njarðvík. Reynsluboltinn Grétar Sigfinnur Sigurðarson spilaði á miðjunni hjá KV í þeim leik.
Þá gerðu Þróttur Vogum og Vængir Júpiters 2-2 jafntefli á Vogaídýfuvellinum.

Magni 1 - 0 Augnablik
1-0 Kristinn Þór Rósbergsson

Njarðvík 3 - 2 KV
0-1 Björn Axel Guðjónsson
1-1 Atli Fannar Hauksson
2-1 Kristján Ólafsson
2-2 Ingólfur Sigurðsson
3-2 Kristján Ólafsson

Þróttur Vogum 2-2 Vængir Júpiters
1-0 Viktor Segatta
2-0 Andy Pew
2-1 Andi Andri Morina
2-2 Ingimar Daði Ómarsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.