Fotbolti.net
29.06.17 - 13:42
Magnús Már Einarsson

Defoe til Bournemouth (Staðfest)

Magnaður markaskorari.

Magnaður markaskorari.

Canon

Mynd: Getty Images

Bournemouth hefur keypt framherjann reynda Jermain Defoe frá Sunderland.

Eftir fall Sunderland úr ensku úrvalsdeildinni var ljóst að Defoe myndi fara frá félaginu og skiptin til Bournemouth hafa legið í loftinu í talsverðan tíma.

Hinn 34 ára gamli Defoe hefur raðað inn mörkum með Sunderland undanfarin ár og komist aftur í enska landsliðið.
Hann þekkir til hjá Bournemouth eftir að hafa leikið með liðinu á láni frá West Ham tímabilið 2000/2001.

„Þegar tækifærið bauðst að snúa aftur til AFC Bournemouth þá vissi ég að þetta væri rétta tækifærið,\" sagði Defoe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.