29.06.18 - 11:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elyounoussi til Southampton á 16 milljónir (Staðfest)

Elyounoussi á 16 landsleiki fyrir Noreg.

Mynd: Getty Images

Southampton er búið að ganga frá kaupum á Norðmanninum Mohamed Elyounoussi.
Elyounoussi getur leikið sem sóknarmaður og kantmaður en hann kemur til Southampton frá Basel í Sviss. Kaupverðið er sagt vera 16 miljónir punda.

Hinn 23 ára gamli Elyounoussi, sem skoraði 23 mörk 83 leikjum fyrir Basel síðastliðin tvö tímabil, skrifaði undir fimm ára samning við Southampton.
Áður en hann gekk í raðir Basel 2016 lék hann með Sarpsborg og Molde í Noregi.
„Ég er mjög ánægður að vera hérna og ég get ekki beðið eftir því að byrja,\" sagði Elyounoussi við heimasíðu Southampton.
Elyounoussi er annar leikmaðurinn sem Southampton fær í sumar. Áður kom miðjumaðurinn Stuart Armstrong frá Celtic.
Southampton náði rétt svo að forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili eftir að Mark Hughes tók við liðinu. Hughes mun stýra liðinu áfram á næstu leiktíð.