Fotbolti.net
29.06.18 - 13:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fellaini fær nýjan samning (Staðfest)

Fellaini fær nýjan samning (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Belgíski miðjumaðurinn Marouane Fellaini er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester United. Samningurinn gildir til 2020 með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Fellaini hefði runnið út á samningi á morgun og vangaveltur voru um framtíð miðjumannsins hárprúða.

Hann er búinn að binda endi á þessar vangaveltur. Hann verður áfram hjá United.

„Ég tók ákvörðunina vegna þess að ég er mjög ánægður hérna,\" segir Fellaini.

„Mér líður eins og þetta lið, undir stjórn Jose, eigi enn eftir að afreka margt. Ég vil þakka Jose (Mourinho) sérstaklega fyrir traustið sem hann hefur sýnt mér.\"

Ekki alltaf sá vinsælasti hjá stuðningsmönnum
Fellaini er þrítugur en hann var fyrsti aðalliðsleikmaðurinn sem David Moyes fékk til félagsins á sínum tíma. Moyes pungaði út 27 milljónum punda til að fá Fellaini frá sínum gömlu félögum í Everton.

Fellaini hefur skorað 20 mörk í 156 leikjum síðan hann kom til Manchester United árið 2013.

Sá belgíski hefur ekki alltaf verið sá vinsælasti hjá stuðningsmönnum Man Utd í gegnum tíðina og margir sem munu eflaust ekki taka vel í þessar fregnir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.