29.06.18 - 20:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ki Sung-yueng til Newcastle (Staðfest)

Ki Sung-yueng er kominn til Newcastle

Mynd: Getty Images

Ki Sung-yueng er kominn til Newcastle

Mynd: Getty Images
Suður-Kóreumaðurinn Ki Sung-yueng er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle en hann kemur frítt til félagsins.
Ki er miðjumaður og hefur mikla reynslu af breska boltanum en hann lék 134 leiki fyrir Swansea og nærri 100 leiki fyrir Celtic í Skotlandi.
Þá hefur hann leikið yfir 100 leiki fyrir Suður-Kóreu en hann var fyrirliði liðsins á heimsmeistaramótinu.
Suður-Kórea lék í F-riðli en datt út eftir riðlakeppnina þrátt fyrir að hafa unnið heimsmeistara Þýskalands í lokaleik sínum.
„Ég er svo ánægður með að ganga til liðs við Newcastle,\" sagði Ki.
Þá er Rafa Benitez, stjóri Newcastle ánægður með nýjasta leikmann sinn.
„Það gleður mig að bjóða Ki velkominn til félagsins. Hann er leikmaður með mikla reynslu í úrvalsdeildinni sem og alþjóðlega reynslu og þetta var auðveld ákvörðun að fá hann hingað,\" sagði Benitez

🇰🇷 Welcome to Newcastle United, Ki Sung-yueng!
— Newcastle United FC (@NUFC) June 29, 2018
Full story: https://t.co/RgflhwnUuJ #NUFC pic.twitter.com/mefpKJC4i0