Fotbolti.net
29.06.18 - 22:12
Ísak Máni Wíum

Kristján Ómar: Menn gera sér sérferðir á Haukaleiki

Auglýsing
Kristján Ómar: Menn gera sér sérferðir á Haukaleiki
Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Ég er ánægður og glaður fyrir þeirra hönd að margir hlutir hafi smollið í okkar leik í dag.\"

Sagði Kristján Ómar Björnsson þjálfari Hauka eftir 4-0 sigur sinna manna gegn ÍR.
Haukar hafa verið mjög óstöðugir í sínum leik í sumar en voru frábærir í dag.

Við höfum verið að díla svolítið við það að einhverjir hlutir hafi verið í fínu lagi og aðrir verið í ólagi. Við spiluðum samt ekkert fullkominn leik.\"

ÍR-ingarnir áttu ekki góðan dag, ég horfði á þá í síðasta leik á móti Fram og þá voru þeir bara hörkugóðir, þéri voru ekki líkir sér í dag. Við náðum bara frumkvæði strax frá fyrstu sekúndu og héldum því allan leikinn.\"

Haukavörnin hefur verið að leka mikið af mörkum en þeir héldu hreinu í dag.

Ég er búinn að vera leggja áherslu á varnarleik frá 1. nóvember og það gengur svona misvel getur maður sagt. Menn fara að gera sér sérferðir á Haukaleiki, þetta eru bara markasúpur en vonandi fer það að breytast.\"

Sagði Kristján Ómar en nánar er rætt við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.