29.06.18 - 13:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ólympíufari semur við Íslandsmeistara Vals (Staðfest)

Sebastian Starke Hedlund.

Mynd: Getty Images

Sebastian Starke Hedlund.

Mynd: Getty Images
Íslandsmeistarar Vals hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni. Sænski varnarmaðurinn Sebastian Starke Hedlund hefur samið við Hlíðarendafélagið.
Sebastian er 23 ára sænskur varnarmaður sem hefur leikið með sænsku liðunum, GAIS, Kalmar FF og þýska liðinu Schalke 04. Hann var í unglingaliðum Schalke og tók nokkra leiki með varaliðinu áður en hann fór aftur heim til Svíþjóðar og samdi við GAIS.
Hann var síðast á mála hjá Mjøndalen í norsku 1. deildinni.

Sebastian á þá leiki með landsliðum Svía: Hann á átta U21 leiki, 13 U19 leiki og 13 U17 leiki. Einnig var hann valinn til að leika með Ólympíulandsliði Svía 2016.
Hedlund verður löglegur með Val 15. júlí en hann kemur til með að fylla í skarð Rasmus Christiansen sem fótbrotnaði illa í Vestmannaeyjum á dögunum.
Valur er á toppi Pepsi-deildarinnar með 21 stig úr 10 leikjum. Næsti leikur Vals er gegn Keflavík 1. júlí.