Fotbolti.net
29.06.20 - 18:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Breiðabliks og Fjölnis: Þrjár breytingar hjá Blikum

Kiddi byrjar í stað Brynjólfs.

Kiddi byrjar í stað Brynjólfs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 19:15 hefjast þrír leikir í Pepsi Max-deild karla og einn af þeim er leikur Breiðabliks og Fjölnis sem fer fram á Kópavogsvelli. Liðin hafa átt ólíku gengi að fagna í deildinni og eru Blikar með fullt hús stiga á meðan Fjölnir hefur eitt stig.

Bæði lið fóru áfram í Mjólkurbikarnum í liðinni viku en lentu þó undir. Í síðustu umferð í deildinni sigraði Breiðablik lið Fylkis í Árbænum, 0-1. Damir Muminovic skoraði sigurmarkið seint í leiknum. Fjölnir lá í sömu umferð gegn Stjörnunni, 1-4, eftir að staðan var 1-1 í hálfleik.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Blikar gera þrjár breytingar á liði sínu frá sigrinum gegn Fylki. Kristinn Steindórsson, Oliver Sigurjónsson og Róbert Orri Þorkelsson koma inn í liðið í stað þeirra Davíðs Ingvarssonar, Guðjóns Péturs Lýðssonar og Brynjólfs Willumssonar.

Fjölnir gerir mögulega eina breytingu á liðinu frá leiknum gegn Stjörnunni. Örvar Eggertsson byrjar í stað Valdimars Inga Jónssonar.

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
11. Gísli Eyjólfsson
16. Róbert Orri Þorkelsson
20. Kristinn Steindórsson
30. Andri Rafn Yeoman

Byrjunarlið Fjölnis:
12. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
4. Sigurpáll Melberg Pálsson
5. Torfi Tímoteus Gunnarsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Ingibergur Kort Sigurðsson
8. Arnór Breki Ásþórsson
16. Orri Þórhallsson
23. Örvar Eggertsson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Guðmundur Karl Guðmundsson
31. Jóhann Árni Gunnarsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.