Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 29. júní 2020 18:27
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið Víkings R. og FH: Pétur Viðarsson í byrjunarliði FH
Pétur Viðars byrjar hjá FH.
Pétur Viðars byrjar hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Erlingur kemur inn hjá Víking.
Erlingur kemur inn hjá Víking.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 19:15 hefst leikur Víkings R. og FH á Víkingsvelli í þriðju umferð Pepsi Max-deildar karla.

Báðum liðum er spáð Evrópubaráttu í sumar en fara misvel af stað. Víkingur er með tvö stig eftir tvær umferðir á meðan FH er með fullt hús stiga, sex stig. Byrjunarliðin eru nú klár.

Heimamenn í Víking gera eina breytingu frá síðasta deildarleik þeirra gegn KA. Helgi Guðjónsson fær sér sæti á bekknum og í hans stað kemur Erlingur Agnarsson inn.

FH-ingar gera tvær breytingar frá leiknum gegn ÍA. Þeir Pétur Viðarsson og Þórir Jóhann Helgason koma inn í stað þeirra Baldurs Sigurðssonar og Guðmanns Þórissonar. Liðin má sjá hér að neðan.

Lestu beina textalýsingu hér

Byrjunarlið Víkings R.:
1. Ingvar Jónsson (m)
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Erlingur Agnarsson
8. Sölvi Ottesen (f)
10. Óttar Magnús Karlsson
11. Dofri Snorrason
20. Júlíus Magnússon
21. Kári Árnason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
24. Davíð Örn Atlason
77. Atli Hrafn Andrason

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Pétur Viðarsson
5. Hjörtur Logi Valgarðsson
6. Daníel Hafsteinsson
7. Steven Lennon
9. Jónatan Ingi Jónsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
14. Morten Beck Guldsmed
16. Guðmundur Kristjánsson
29. Þórir Jóhann Helgason

Lestu beina textalýsingu hér
Athugasemdir
banner
banner
banner