Nakkim vildi skora þrennu - „Jónatan er sérstakur leikmaður"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er góð tilfinning. Við þurftum á sigrinum að halda, við gerðum okkur svolítið erfitt fyrir en sigur er sigur og við erum mjög ánægðir," sagði Markus Nakkim sem skoraði tvennu í sigri Vals gegn Þór á Akureyri í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 Valur
„Ég sá Myles (Veldman) með boltann sem sendi á (Ingimar) Stöle, mjög gott tækifæri til að senda boltann fyrir á Albin (Skoglund) sem ákvað að skora ekki en góð stoðsending til mín frá slánni. Jónatan er með gæði og mun alltaf senda boltann á góðan stað þetta er bara spurning um að hlaupa þangað," sagði Nakkim.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem varnarmaðurinn skorar tvennu en hann vildi bæta þriðja markinu við.
„Já, en aldrei þrjú. Ég var að vonast til að ná því. Að lokum þurftum við að hugsa um annað, að ná í stigin þrjú. Ég er mjög ánægður," sagði Nakkim.
Nakkim er að snúa aftur eftir meiðsli eins og Jónatan Ingi Jónsson sem lagði upp á Nakkim.
„Það er auðvelt að nota stór orð um leikmenn, Jónatan er einn af þeim sem á það skilið. Eins og ég þá er hann að koma til baka eftir meiðsli og við þurfum að gefa honum tíma til að komast í sitt besta form. Hann er sérstakur leikmaður, það eru fáir leikmenn sem gera það sem hann gerir. Við spilum oft saman á hægri vængnum. Hann er leikmaður sem maður elskar að spila með. Maður lætur hann bara fá boltann og hann býr eitthvað til."
Nakkim segist vera í góðu formi eftir meiðslin.
„Formið er ótrúlega gott. Það er alltaf erfitt að koma til baka eftir langvarandi meiðsli sama hvað maður gerir í ræktinni. Fótbolti eer einstakur, það tekur tíma til að komast í hundrað prósent form. Til að gera það þarf maður að spila leiki. Ég get æft af fullum krafti og vonandi get ég byggt ofan á það," sagði Nakkim.
Hann vonast til að Valsliðið komist á gott skrið en liðið hafði verið án sigurs í síðustu fjórum leikjum.
„Við höfum ekki staðið okkur vel. Við erum ekki á þeim stað sem við ætlumst til að okkur sjálfum. Við höfum þurft að takast á við margar áskoranir og meiðsli en við getum ekki kennt því um. Við erum að fá lykilmenn til baka og getum byggt ofan á þann grunn. Svo getum við fengið skriðþunga og byggt ofan á grunninn sem við vorum að vinna í á undirbúningstímabilinu með fimm manna vörn. Við höfum þurft að gera margar breytingar sem hefur truflað taktinn," sagði Nakkim.