Fotbolti.net
28.06.26 - 21:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Kanada í 16-liða úrslit eftir dramatískt sigurmark

HM: Kanada í 16-liða úrslit eftir dramatískt sigurmark
Canon

Mynd: EPA

Suður-Afríka 0 - 1 Kanada
0-1 Stephen Eustaquio ('90 )
Kanada er komið í 16-liða úrslit á HM eftir dramatískan sigur á Suður-Afríku í fyrsta leik 32-liða úrslitanna í kvöld.

Kanadamenn voru ekki sáttir undir lok fyrri hálfleiks þegar þeir vildu fá vítaspyrnu. Þeir töldu að Khuliso Mudau hafi brotið á Richie Laryea. VAR skoðaði atvikið og Mudau náði smá snertingu á boltann og ekkert dæmt.

Jonathan David var nálægt því að koma Kanada yfir eftir rúmlega klukkutíma leik en hann náði ekki til boltans í dauðafæri áður en Mbekezeli Mbokazi skallaði boltann frá.

Promise David var síðan nálægt því að skora með skoti fyrir utan teiginn eftir sendingu frá Alphonso Davies sem var að spila sínar fyrstu mínútur á mótinu en boltinn fór rétt framhjá.

Það dró til tíðinda í uppbótatíma. Stephen Eustáquio tók vel á móti boltanum og skoraði með góðu skoti og tryggði Kanada í 16-liða úrslitin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.