Fotbolti.net
29.07.16 - 15:56
Ívan Guðjón Baldursson

Ingiberg Ólafur kominn í Fjarðabyggð (Staðfest)

Ingiberg Ólafur kominn í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Varnarmaðurinn ungi Ingiberg Ólafur Jónsson er genginn til liðs við Fjarðabyggð eftir tvö og hálft ár hjá Fram.

Ingiberg hefur verið byrjunarliðsmaður hjá Fram í Pepsi-deildinni og Inkasso-deildinni á síðustu árum og er mikill liðsstyrkur fyrir Fjarðabyggð sem er aðeins fjórum stigum frá fallsæti í Inkasso-deildinni.
Ingiberg er búinn að spila tíu deildarleiki og þrjá bikarleiki á tímabilinu og búinn að skora eitt mark.

Fjarðabyggð er tveimur stigum á eftir Fram og á næst leiki við Keflavík og Leikni R.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.