29.07.18 - 00:09
Elvar Geir Magnússon
Matic í aðgerð - Mourinho pirraður út í Martial

Matic í leik með Man Utd á síðasta tímabili.

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hefur verið pirraður út í allt og alla að undanförnu. Hann hefur talað um slæmt undirbúningstímabil þar sem marga lykilmenn hefur vantað og þá segir hann stjórnina ekki láta sig fá þá leikmenn sem hann óski eftir.
Manchester United tapaði sannfærandi fyrir Liverpool í æfingaleik en eftir leikinn ræddi Mourinho við fjölmiðla.

Hann opinberaði það að miðjumaðurinn Nemanja Matic hefur gengist undir aðgerð og mun missa af byrjun tímabilsins. Matic lék með Serbum á HM og fór í aðgerð eftir mótið.
Þá viðurkennir Mourinho að hann sé svekktur út í franska sóknarleikmanninn Anthony Martial sem yfirgaf æfingabúðir United til að vera viðstaddur fæðingu barns síns. Hann hefur ekki skilað sér til baka.
„Hann eignaðist fallegt heilbrigt barn. Eftir að barnið er fætt ætti hann að koma hingað... hann er ekki hér,\" sagði Mourinho og fjölmiðlar eru farnir að tala um að Martial gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir United.
Tottenham og Chelsea hafa áhuga á Martial en ensku blöðin telja að United sé bara tilbúið að selja hann utan Englands. Paris Saint-Germain og Bayern München eru nefnd í þeirri umræðu.

Anthony Martial.

Mynd: Getty Images