29.07.18 - 11:13
Elvar Geir Magnússon
Mourinho: Á hann að vera ánægður með þessa leikmenn?

Jose Mourinho er pirraður þessa dagana.

Mynd: Getty Images

Alexis Sanchez.

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho er pirraður þessa dagana.

Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, er neikvæðari en nokkru sinni fyrr nú þegar styttist óðum í að flautað verði til leiks í ensku úrvalsdeildinni.
Stöðugur fréttaflutningur er um neikvæð ummæli Mourinho sem virðist pirraður út í flest. Meðal annars hefur hann skotið á stjórn United og talað um að hann fái ekki það sem hann vilji á leikmannamarkaðnum.
Sjá einnig:
Mourinho pirraður út í Martial
Mourinho: Vont undirbúningstímabil hjá United

Alexis Sanchez var einn af fáum fastamönnum United sem lék í 4-1 tapinu gegn Liverpool í æfingaleik í Bandaríkjunum í gær. Eftir leikinn var Mourinho spurður út í það að Sílemaðurinn hafi ekki náð sér á strik og hafi virkað svekktur á vellinum.
„Á hann að vera ánægður með þessa menn í kringum sig? Við erum ekki að spila hérna til að bæta liðið eða leikkerfið. Við erum að spila til að lifa af og sjá til þess að úrslitin verði ekki of ljót,\" segir Mourinho en lykilmenn hans fengu lengra frí vegna þátttöku á HM auk þess sem meiðsli hafa herjað á hópinn.
„Alexis er eini sóknarmaðurinn sem við höfum. Við erum ekki með vængmenn, við höfum ekki strækera. Hann er sá eini hérna og aumingja maðurinn er að gera sitt besta meðan einhverjir heimta að hann geri meira.\"
„Hann spilaði frábærlega gegn Milan og gerði sitt besta í þessum leik. Ég tel að þú getir ekki sagt að hann sé óánægður. Ef hann væri óánægður væri hann ekki að spila tvo nánast heila leiki í röð og sýna þessa vinnusemi. Ég er mjög ánægður með hann.\"
Talsverð umræða hefur verið meðal stuðningsmanna United um þau ummæli Mourinho að Alexis Sanchez geti varla verið ánægður með að spila í kringum þessa leikmenn. Portúgalinn kastar leikmönnum undir rútuna og varla er þetta til að efla sjálfstraust ungra leikmanna liðsins.
United lýkur Bandaríkjaför sinni með leik gegn Real Madrid á þriðjudag en fyrsti leikur liðsins í úrvalsdeildinni verður gegn Leicester 10. ágúst.