Fotbolti.net
29.07.19 - 13:30
Arnar Daði Arnarsson

Ísabella Anna lánuð í Fylki (Staðfest)

Ísabella í leik með Fjölni í sumar.

Ísabella í leik með Fjölni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Ísabella Anna Húbertsdóttir hefur verið lánuð í Fylki frá Val en hún lék fyrri hluta sumars á láni hjá Fjölni í Inkasso-deildinni.

Ísabella lék tíu leiki með með Fjölni í Inkasso-deildinni í sumar og einn í bikarnum en hún var einnig með Fjölnisliðinu fyrrasumar þar sem hún skoraði þrjú mörk í sjö leikjum.
Ísabella Anna sem er fædd árið 2001 á að baki fimm leiki með Val þar sem hún er uppalin. Hún gæti leikið sinn fyrsta leik með Fylki á miðvikudaginn þegar ÍBV kemur í heimsókn í Árbæinn.

Fylkir er í 6. sæti Pepsi Max-deildarinnar með 13 stig, þremur stigum frá fallsæti en liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð.

Fylkisliðið missir fimm leikmenn út í háskólanám um mánaðarmótin og því hefur Kjartan Stefánsson þjálfari Fylkis verið í leit af styrkingu.

Leikmenn Fylkis sem fara út í nám:
Thelma Lóa Hermannsdóttir
Kristín Þóra Birgisdóttir
Lilja Vigdís Davíðsdóttir
Hulda Hrund Arnarsdóttir
Rakel Jónsdóttir
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.