Fotbolti.net
29.07.19 - 10:49
Arnar Daði Arnarsson

Reynslumikill markvörður í Fjölni (Staðfest)

Berglind í leik með Fjölni sumarið 2017.

Berglind í leik með Fjölni sumarið 2017.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Berglind Magnúsdóttir er gengin í raðir Fjölnis í Inkasso-deildinni en hún kemur frá Álftanesi þar sem hún hefur leikið fjóra leiki með liðinu í 2. deildinni í sumar.

Berglind þekkir vel til í Grafarvoginum en hún lék síðast með liðinu í 2. deildinni sumarið 2017 og einnig lék hún þrjá leiki með Fjölni sumarið 2006 í 1. deildinni.

Berglind er reynslumikill markmaður fædd árið 1984. Hún á yfir 140 KSÍ leiki á bakinu og þar af tæpa 80 leiki í efstu deild.
Fjölnisliðið er í mikilli fallbaráttu í Inkasso-deildinni með 11 stig í fallsæti. ÍA er sæti ofar með jafnmörg stig en betri markatölu og þá er Grindavík og Augnablik ekki langt undan.

Hrafnhildur Hjaltalín aðalmarkvörður Fjölnis er á leið út í nám og Helena Jónsdóttir er einnig á leið erlendis í nám og því var liðið í markmannsvandræðum.

Berglind hafði á sínum tíma gríðarleg áhrif á þróun efstu deildar kvenna en vegna þátttöku hennar í einni viðureign var fjölgað tvö ár í röð í deildinni, fyrst úr 8 í 9 lið, svo úr 9 í 10 lið.

Þetta var haustið 2006 þegar Þór/KA og ÍR mættust í umspili haustið 2006 um hvort liðið ynni sér sæti í Landsbankadeild kvenna 2007. ÍR lenti í vandræðum fyrir leikina þar sem þeirra markvörður var meiddur og félagaskiptaglugginn var lokaður. KSÍ heimilaði undanþágu svo ÍR gæti fengið Berglindi lánaða frá KR til að spila þessa tvo leiki.

Svo fór að ÍR vann viðureignirnar og tryggði sér þar með sæti í Landsbankadeildinni. Þór/KA kærði hinsvegar úrslit leikjanna þar sem Berglind hafði áður spilað með Fjölni og KR er hún gekk í raðir ÍR sem varð þar með þriðja félagið sem hún spilaði með á árinu sem er ólöglegt. Á endanum lauk málinu á þann hátt að Þór/KA vann málið.

KSÍ tók hinsvegar ákvörðun um að þar sem mistökin í málinu lágu hjá sambandinu sem heimilaði félagaskiptin skyldi fjölgað í Landsbankadeildini 2007 í 9 lið svo bæði lið færu upp, og í kjölfar þess yrði fjölgað í 10 lið fyrir deildina 2008.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.