Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 29. júlí 2021 21:06
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Víðir Þorvarðar sá um KFG
Víðir Þorvarðarson skoraði bæði mörk KFS
Víðir Þorvarðarson skoraði bæði mörk KFS
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFS 2 - 1 KFG
1-0 Víðir Þorvarðarson ('3 )
2-0 Víðir Þorvarðarson ('33 )
2-1 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('90. víti )

KFS vann nokkuð óvæntan 2-1 sigur á KFG í 3. deild karla í dag en spilað var á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Víðir Þorvarðarson skoraði tvö mörk fyrir KFS í fyrri hálfleik en fyrra markið kom eftir þrjár mínútur og svo bætti hann við öðru hálftíma síðar.

Gestirnir minnkuðu muninn undir lok síðari hálfleiks með marki frá Jóhanni Ólafi Jóhannssyni úr vítaspyrnu.

Lokatölur 2-1 fyrir KFS sem er með 16 stig í 9. sæti en KFG er í öðru sæti með 25 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner