Fotbolti.net
29.07.26 - 13:31
Ívar Björgvinsson

Besti leikmaður ísraelsku deildarinnar seldur - Fær að spila gegn Víkingum í dag

Kings var valinn besti leikmaður ísraelsku deildarinnar á síðustu leiktíð.

Kings var valinn besti leikmaður ísraelsku deildarinnar á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: EPA

Hapoel Be'er Sheva, andstæðingur Víkings í Meistaradeildinni, vann ísraelsku deildina á síðustu leiktíð og sambíski landsliðsmaðurinn, Kings Kangwa, var valinn besti leikmaður deildarinnar.

Hann var í byrjunarliði Hapoel gegn Víkingum í fyrri leik liðanna sem fór fram á þriðjudaginn í síðustu viku á Víkingsvellinum þar sem Víkingar fóru með 2-1 sigur af hólmi. Kings skoraði einmitt mark Hapoel í leiknum.
Lestu um leikinn: Hapoel Be'er Sheva 0 - 0 Víkingur R.

Hapoel tilkynnti fyrir nokkrum dögum síðan að Kings Kangwa verði seldur til gríska stórliðsins og Víkingsbananum, Panathinaikos.

Félagið kaupir hann á um 4 milljónir evra sem er næst stærsta salan í sögu Hapoel. Panathinaikos hafnaði í 4. sæti grísku deildarinnar á síðustu leiktíð og tekur því þátt í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Liðið er komið í 2. umferðina en þar er staðan eftir fyrri leik liðsins við Paksi SE, 2-1 Grikkjunum í vil.

Hapoel hefur tilkynnt að Kings fái að spila leik kvöldsins gegn Víkingum í 2. umferð í undankeppni Meistaradeildarinnar en það verður jafnframt kveðjuleikur hans fyrir félagið.

Leikurinn fer fram í Ungverjalandi vegna ástandsins í Ísrael og fær hann því ekki að spila fyrir framan alla stuðningsmenn liðsins þar sem aðeins er gert ráð fyrir um 200-300 ísraelskum stuðningsmönnum á völlinn.

Skoraði mark Hapoel í fyrri leiknum.

Skoraði mark Hapoel í fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.