28.07.26 - 22:20
Hafþór Örn Laursen
Einar Guðna: Ég er meira hræddur um gengi liðsins heldur en mína stöðu
Auglýsing

Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur fór í heimsókn í Laugardalinn og gerðu 1-1 jafntefli við Þrótt í 13. umferð Bestu Deildar kvenna. Einar Guðna, þjálfari Víkings, var fenginn í viðtal eftir leik.
„Ég er svekktur að hafa ekki unnið leikinn en ég er feginn að hafa ekki tapað fyrst við vorum undir góðan hluta leiksins, en mér fannst við verðskuldað að vinna þennan leik''.
„Varnarleikurinn var þéttur að mestu leyti. við fengum fínar stöður í fyrri hálfleik þar sem við tökum rangar ákvarðanir til að koma okkur í dauðafæri. Í seinni hluta seinni hálfleiks þá vorum við alveg með þetta og hefðum við fengið tvær mínútur í viðbót hefðum við getað sett hann.''
Telma Ívarsdóttir spilaði sinn fyrsta leik fyrir Víking í kvöld, en hún kom til liðsins í vikunni frá Rangers í Skotlandi.
„Hún kemur frábærlega inn. Hún er sterkur karakter og gefur mikið af sér og með mikla reynslu þannig við erum mjög ánægð með hana.''
Víkingur hefur ekki unnið leik síðan 30. maí gegn Þór/KA sem fór 4-6 fyrir Víking. Einar var spurður hvort hann hefði áhyggjur af stöðu sinni hjá félaginu.
„Ég er í rauninni meira hræddur um gengi liðsins heldur en mína stöðu. Þetta er nátturulega ekki góð staða en við erum að reyna að finna okkur leið til að grafa okkur úr þessu og við verðum að halda því áfram.''
Víkingur spilar sinn næsta leik gegn Val á Hlíðarenda þann 6. ágúst.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan