29.07.26 - 11:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haukar fá fyrirliða 2. flokks Blika (Staðfest)

Mynd: Haukar

Mynd: Haukar
Breki Freyr Ágústsson hefur fengið varanleg félagaskipti frá Breiðabliki í Hauka og skrifar undir tveggja ára samning á Ásvöllum.
Breki er 19 ára gamall og lék fjóra leiki með meistaraflokki Breiðabliks, en hann er uppalinn hjá félaginu. Þrír leikjanna voru í Lengjubikarnum í fyrra og einn á þessu ári.
Hann var burðarás í 2. flokki félagsins undanfarin ár og verið fyrirliði þar á þessu tímabili.

Breki er miðjumaður sem er samkvæmt Transfermarkt líka með bandarískan ríkisborgararétt.
Hann fær leikheimild með Haukum á morgun og verður því ekki með toppliði 2. deildar gegn KFG í kvöld.
Hann fær leikheimild með Haukum á morgun og verður því ekki með toppliði 2. deildar gegn KFG í kvöld.
2. deild karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 22 | +23 | 47 |
| 2 | Selfoss | 22 | +19 | 45 |
| 3 | Kári | 22 | +27 | 42 |
| 4 | Dalvík/Reynir | 22 | 0 | 31 |
| 5 | Víkingur Ó. | 22 | -8 | 31 |
| 6 | Fjölnir | 22 | +3 | 30 |
| 7 | KFA | 22 | +6 | 29 |
| 8 | Kormákur/Hvöt | 22 | +4 | 27 |
| 9 | Magni | 22 | -19 | 25 |
| 10 | Þróttur V. | 22 | -9 | 23 |
| 11 | KFG | 22 | -20 | 22 |
| 12 | Hvíti riddarinn | 22 | -26 | 17 |

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét