Fotbolti.net
29.07.26 - 09:12
Elvar Geir Magnússon

Grealish fór ekki með flugvélinni

Grealish á Múlunni fyrr í þessum mánuði.

Grealish á Múlunni fyrr í þessum mánuði.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City verður næstu ellefu daga í æfngaferð í Hong Kong og Seúl. Jack Grealish fór ekki með í flugvélina.

Áætlað var að hann þrítugi Grealish yrði með City í ferðinni en BBC segir að meiðsli sem hann hlaut á lánsdvöl sinni hjá Everton séu enn að hrjá hann. Grealish hefur ekki spilað leik á árinu 2026.
Fær annað tækifæri hjá Man City
TENGT EFNI

Fær annað tækifæri hjá Man City

Grealish er á leið í lokaár samnings síns við City og framtíð hans er í óvissu. Spurning er hvort Enzo Maresca, nýr stjóri City, sé tilbúinn að gefa honum tækifæri eða vilji að leikmaðurinn fari annað.

Maresca lokaði engum hurðum þegar hann var spurður út í málið á dögunum, sagði að Grealish væri leikmaður City og hann væri því þjálfarinn hans.

Grealish er mikið fyrir skemmtanalífið og reglulega birta ensku götublöðin myndir af honum við drykkju. Það er eitthvað sem er talið að valdi Maresca ákveðnum áhyggjum.
Grealish var lánaður til Everton á síðasta tímabili.

Grealish var lánaður til Everton á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.