Fotbolti.net
29.07.26 - 11:28
Kári Snorrason

Kalli ræðir atvinnumennsku: Held að fólk átti sig ekki á hvað Víkingur er á góðum stað

„Ég er mjög sáttur í Víkingi en markmiðið er auðvitað alltaf að komast út.“

„Ég er mjög sáttur í Víkingi en markmiðið er auðvitað alltaf að komast út.“

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

„Algjörlega, og það hefur alveg verið mikið í umræðunni,“ segir Karl Friðleifur Gunnarsson aðspurður um hvort markmið hans sé að fara út í atvinnumennsku.

Karl, sem er 25 ára hægri bakvörður, hefur verið lykilmaður í liði Víkings síðustu ár. Hann gekk til liðs við félagið frá uppeldisfélaginu Breiðabliki árið 2021.

Hann hefur oft verið orðaður við skrefið út og var m.a. á lista Fótbolta.net yfir tíu stærstu söluvörurnar í Bestu deildinni.

Fótbolti.net ræddi við Karl úti í Ungverjalandi í gær þar sem Víkingur undirbýr sig fyrir seinni leik liðsins gegn ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.
Lestu um leikinn: Hapoel Be'er Sheva 0 - 0 Víkingur R.
„Ég held að fólk átti sig ekki á hvað Víkingur er á góðum stað. Það eru í raun forréttindi að fá að spila fyrir Víking - spila í forkeppni Meistaradeildarinnar og um titla á hverju einasta ári,“ segir Karl og heldur áfram.

„Ég held að það séu margir sem taka því sem sjálfsögðum hlut, sem það er ekki. Ég er mjög sáttur í Víkingi en markmiðið er auðvitað alltaf að komast út. Ef það kemur gott lið sem væri rökrétt að fara í úti þá er ég algjörlega tilbúinn að skoða það. En það þarf að vera gott lið og meika 'sense' svo að ég taki næsta skref,“ segir Karl að lokum.
Seinni leikur Víkings og Hapoel Be'er Sheva fer fram á eftir.

Seinni leikur Víkings og Hapoel Be'er Sheva fer fram á eftir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gekk til liðs við Víking frá Breiðabliki árið 2021.

Gekk til liðs við Víking frá Breiðabliki árið 2021.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karl Friðleifur: Tókum lærdóm frá þeim leik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.