29.07.26 - 10:35
Elvar Geir Magnússon
Leikmenn Liverpool urðu strandaglópar svo goðsagnir kynntu nýja treyju

Robbie Fowler og Ian Rush.

Mynd: Liverpool

Robbie Fowler og Ian Rush.

Mynd: Liverpool
Kynning á nýrri varatreyju Liverpool fór á annan veg en áætlað var. Það voru góð ráð dýr þegar leikmenn Liverpool urðu strandaglópar í Chicago en flugi þeirra til New York var frestað vegna veðurs.
Ákveðið hafði verið að kynna nýju treyjuna í Brooklyn í New York en þegar liðið komst ekki á athöfnina var kallað í tvær goðsagnir, sóknarmennina Ian Rush og Robbie Fowler, og þeir hlupu í skarðið.
Rush og Fowler eru staddir í Bandaríkjunum sem sérstakir sendiherrar Liverpool. Þeir ræddu við viðstadda á kynningunni um minningar þeirra tengdum gömlum Liverpool treyjum

Liverpool mætir Wrexham í æfingaleik í kvöld sem hefst 23:30 að íslenskum tíma. Hann verður spilaður á Yankee vellinum í New York og kynningin á nýju treyjunni er í tengslum við þann leik.
Ný varatreyja Liverpool er annars glæsileg en hún er hönnuð eftir treyjum Liverpool um miðjan níunda áratug síðustu aldar og ber gamla þríblaða merki Adidas.

???????? pic.twitter.com/cG7y1T43oy
— Liverpool FC (@LFC) July 29, 2026