Fotbolti.net
29.07.26 - 10:06
Kári Snorrason

Dyche og Scholes ræða um Heiðar Helgu - Sá lélegasti á æfingum

Heiðar og Dyche voru liðsfélagar hjá Watford upp úr aldarmótum.

Heiðar og Dyche voru liðsfélagar hjá Watford upp úr aldarmótum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heiðar Helguson bar á góma í hlaðvarpsþættinum Football's Greatest, sem þeir Paul Scholes og Nicky Butt stýra. Sérstakur gestur þáttarins var atvinnulausi stjórinn Sean Dyche.

Í þættinum voru þeir spurðir hver væri versti leikmaður á æfingum sem þeir hefðu spilað með. Scholes og Butt nefndu báðir Brian McClair en Dyche valdi Heiðar. Þeir voru liðsfélagar hjá Watford á árunum 2002 til 2005.
„Þið munið kannski ekki eftir mínum. Jú mögulega, Heiðar Helguson framherji,“ sagði Dyche.

„Já, að sjálfsögðu. Var í Fulham, fínasti leikmaður. Lítill en naglharður,“ sagði Scholes og Dyche kinkaði kolli áður en hann tók aftur orðið.

„Þegar þú varst með honum í liði á æfingu þá hugsaðiru bara að þú værir búinn að tapa. Við kölluðum stundum á stjórann, Ray Lewington, 'Þú gætir bara sleppt þessu, við erum með Heiðar - hver er tilgangurinn?',“ sagði Dyche léttur



Scholes mundi vel eftir Heiðari.

Scholes mundi vel eftir Heiðari.

Canon

Mynd: EPA

Segir Heiðar lélegasta leikmanninn á æfingum.

Segir Heiðar lélegasta leikmanninn á æfingum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.