Gylfi eftir enn eitt jafnteflið gegn Stjörnunni: Væri til í að spila við þetta lið í hverri viku

Gylfi var stoltur af frammistöðu Grindavíkur/Njarðvíkur eftir markalaust jafntefli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi var stoltur af frammistöðu Grindavíkur/Njarðvíkur eftir markalaust jafntefli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan og Grindavík/Njarðvík gerðu markalaust jafntefli á Samsungvellinum í kvöld. Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var ánægður með margt í frammistöðu síns liðs eftir leik.
„Mér fannst við spila þennan leik mjög vel. Heilt yfir fjaraði aðeins undan hjá okkur síðustu 20-30 mínúturnar og þá var þetta óþægilegt.“
Hann taldi það eðlilegt í ljósi mikils álags á liðinu.
„Ég held það sé alveg eðlilegt þegar við fáum einhverja tvo daga á milli leikja, sem er ótrúleg ákvörðun að þessi leikur sé ekki færður degi seinna þegar undanúrslitaleik er troðið á laugardagseftirmiðdag.“
„Ég er bara ótrúlega stoltur af þessu liði, hvernig þær mættu í þennan leik og hvernig þær spiluðu þennan leik. Mögulega var jafntefli sanngjarnt, ég veit það ekki, en ef eitthvað lið átti skilið sigur í dag þá fannst mér það vera við.“
„Mér fannst þetta bara hörkuleikur. Þetta er fimmta skipti sem við mætum Stjörnunni á árinu og allir leikir hafa verið jafntefli eftir 90 mínútur. Það er ótrúlega gaman að spila á móti þessu liði af mörgum ástæðum.“
„Ég væri til í að spila við þetta lið í hverri einustu viku ef ég mætti ráða.“
Félagaskiptaglugginn er opinn og miklar breytingar hafa orðið á hópnum hjá Grindavík/Njarðvík.
„Það eru einhverjir að fara út og einhverjir að koma inn í viðbót en við vitum allavega hvaða hóp við munum hafa restina af tímabilinu. Ég er ofboðslega sáttur með þann hóp.“
Gylfi segir breytingarnar á hópnum ekki hafa verið óskastöðu en er ánægður með hvernig félagið hefur unnið úr stöðunni.
„Þetta eru 10-12 leikmenn sem hafa gert félagskipti eða munu gera félagskipti. Það er ekkert grín.“
„Maður er ekkert að óska sér mikilla breytinga á miðju tímabili en við neyddumst í þær og ég er bara sáttur. Það á eftir að tilkynna eitthvað en við erum búin að klára allt sem við viljum klára.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
