29.08.17 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Boga lánaður frá Chelsea til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham City hefur nælt í Jeremie Boga á láni frá Englandsmeisturunum í Chelsea.
Þetta er þriðja tímabilið í röð þar sem Boga er lánaður frá Chelsea. Hann var á síðasta tímabili í láni hjá Granada, sem féll úr spænsku úrvalsdeildinni, og þar áður var hann hjá Rennes í Frakklandi.

Boga er hvorki meira né minna en níundi leikmaðurinn sem Harry Redknapp fær til Birmingham í sumar.
Hann lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni þegar Chelsea lék gegn Burnley í opnunarleik sínum í deildinni. Boga var ekki lengi inn á vellinum þar sem honum var skipt út af eftir að Gary Cahill fékk rautt spjald fyrir groddaralega tæklingu.
Birmingham hefur aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum í Championship-deildinni.