29.08.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bristol City fær Leko frá West Brom (Staðfest)

Jonathan Leko.

Mynd: Getty Images

Jonathan Leko.

Mynd: Getty Images
Íslendingalið Bristol City hefur gengið frá lánssamningi við hinn efnilegi Jonathan Leko. Hann kemur frá West Brom.
Miklar vonir eru bundnar við Leko, en hann þykir mjög efnilegur.

Hinn 18 ára gamli Leko spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir West Brom árið 2015 í deildabikarnum. Hann spilaði síðan sinn fyrsta leik West Brom í ensku úrvalsdeildinni í apríl á síðasta ári.
Hann hefur síðan þá spilað 14 leiki í ensku úrvalsdeildinni, þar af níu á síðasta leiktímabili. Leko, sem er sóknarleikmaður, á þó enn eftir að skora mark, sem er kannski ekki skrítið þar sem Tony Pulis, stjóri West Brom, hefur meira verið að nota hann inn af bekknum.
Hann tekur þetta tímabil með Bristol City og safnar leikreynslu. Tammy Abraham, sem er núna hjá Swansea, var hjá Bristol á síðasta tímabili í láni frá Chelsea og raðaði inn mörkum. Leko kemur til með að fylla skarð hans í sóknarleik Bristol City að vissu leyti.
Hörður Björgvin Magnússon er samningsbundinn Bristol City, en hann hefur lítið fengið að spila að undanförnu.