Fotbolti.net
29.08.17 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jovetic til Mónakó (Staðfest) - Fyllir skarð Mbappe

Jovetic til Mónakó (Staðfest) - Fyllir skarð Mbappe
Canon

Mynd: Mónakó

Frakklandsmeistarar Mónakó hafa fest kaup á sóknarmanninum Stefan Jovetic. Hann kemur frá Inter Milan.

Jovetic kemur til með að fylla skarð Kylian Mbappe að einhverju leyti hjá Mónakó. Mbappe, sem var magnaður á síðasta tímabili, verður <a href=\"http://fotbolti.net/news/29-08-2017/mbappe-buinn-i-laeknisskodun-hja-psg\" target=\"_blank\">staðfestur sem leikmaður Paris Saint-Germain</a> seinna í dag.
Hinn 27 ára gamli Jovetic vakti fyrst athygli með Fiorentina, en hann fór þaðan til Manchester City árið 2013.

Hann fann sig aldrei almennilega í Manchester-borg og sneri aftur til Ítalíu, til Inter Milan, tímabilið 2015/16. Hann fór fyrst á láni, en var síðan keyptur fyrir síðasta tímabil. Hann fann ekki taktinn hjá Inter.

Hann var lánaður til Sevilla á síðasta tímabili þar sem hann skoraði sjö mörk í 24 leikjum. Sevilla vildi kaupa hann eftir tímabilið, en þeir höfðu ekki fjármuni til þess að landa honum.

Mónakó hefur svo sannarlega fjármunina. Þeir borga fyrir hann 13 milljónir evra, en hann skrifaði undir samning til 2021.

L’AS Monaco est heureux d’annoncer la signature de @sjovetic jusqu'en 2021 ! #WelcomeToMonaco pic.twitter.com/DQyDRtZah4

— AS Monaco 🇲🇨 (@AS_Monaco) August 29, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.