29.08.17 - 21:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Keita Balde til Mónakó (Staðfest) - Lemar á förum?

Keita Balde er kominn til Mónakó frá Lazio

Mynd: Getty Images

Penninn er funheitur hjá franska liðinu Mónakó en Keita Balde skrifaði í kvöld undir hjá félaginu. Keita kemur til liðsins frá Lazio og er kaupverðið talið vera 30 milljónir evra plús 5 milljónir evra í frammistöðutengdar greiðslur.
Keita skrifaði undir fimm ára samning við Mónakó og verður hann í treyju númer 14 hjá félaginu.
<i>„Ég er mjög sáttur með að vera kominn til AS Mónakó, félag með frábæra sögu. Ég er mjög ánægður að vera hér og hlakka til að byrja að spila,\"</i> sagði Keita við opinbera heimasíðu Mónakó.
<i>„Margir leikmenn og vinir mínir töluðu við mig um félagið, andann í hópnum og liðið. Þegar þér býðst að koma hingað þá samþykkir þú það um leið.\"</i>
Fyrr í dag gekk Stevan Jovetic til liðs við Mónakó en félagið er loksins að styrkja sig eftir að hafa misst marga lykilmenn frá síðasta tímabili.
Spurning hvaða áhrif þetta hefur á framtíð Thomas Lemar hjá Mónakó en þeir hafa hafnað tveimur tilboðum frá Liverpool í kappann á síðasta sólarhring.